Radisson SAS
Deutsch English Islenska
Help
Um hótelið My Bookings Find Hotels Pleasure Business Plan a Meeting Partners & Miles
Banner Image
Back
 
Radisson SAS Saga Hotel, Reykjavik  
Um hótelið Staðsetning Herbergi Þjónusta Veitingastaðir Fundir Sérstök tilboð Hafðu samband
 
 
 
 
  
 
 

Að loknum ströngum fundadegi eða langri ferð er einstaklega gott að láta líða úr sér í heilsu ræktinni Mecca Spa. Það er unaðslegt að halla sér aftur, slaka á og njóta þess að láta dekra við sig með andlitsbaði, leirnuddi, handsnyrtingu, fótsnyrtingu eða allsherjar líkamsmeðferð. Orkuboltarnir geta tekið hressilega á í fullkomnum tækjasal Mecca Spa.Gestir á hótelinu geta nýtt sér heilsuræktarstöðina endurgjaldslaust.

Opið
Mán.-fös.: 07:00-20:00
Lau.: 09:00-18:00

  • Fullkomin líkamsræktarstöð
  • Nudd og dekurmeðferð
  • Jacuzzi-nuddker með sjó
  • Sánabað
  • Gufubað
  • Aðgreindir búningsklefar fyrir karla og konur
  • Handklæði, sloppur og inniskór fyrir hvern einstakan gest
Við ráðleggjum fólki að panta meðferðartíma fyrirfram.

www.meccaspa.is

 

Vönduð rakarastofa er á neðstu hæð hótelsins og býður upp á hármeðferðir af öllu tagi. Þá fæst þar einnig úrval af hár- og húðsnyrtivörum fyrir karlmenn.
Opið: Mán.-fös. kl. 9:00-18:00, lau. kl. 10:00-14:00 (á tímabilinu 1. sept. til 30. apríl)

Hárgreiðslustofan Hársaga á Radisson SAS Hótel Sögu er fjölsótt af öllum almenningi ekki síður en gestum hótelsins. Hársaga býður viðskiptavinum sínum allt það besta í meðferð og umhirðu hársins. 
Opið: Mán., þri., fim., fös. kl. 9:00-18:00, mið. kl. 9:00-20:00, lau. kl. 10:00-16:00

www.harsaga.is

 

Kynnisferðir bjóða upp á fjölbreyttar áætlunarferðir og þjónustu af ýmsu tagi, þar á meðal ferðir flugrútu beint til Keflavíkurflugvallar. Þar er einnig bókunarþjónusta fyrir innanlandsflug Flugfélags Íslands og allar stærstu bílaleigurnar.
Opið: Alla daga kl. 8:00-12:00 og 16:00-20:00.

www.re.is 

 

Í minjagripaversluninni fæst allt milli himins og jarðar, allt frá sælgæti og snyrtivörum upp í handprjónaðar íslenskar ullarpeysur. Opið: Alla daga kl. 8:00-14:00 og 16:00-20:00. 
 

Opinn alla virka daga kl. 9:15-16:00. Hraðbanki er við bankann og er hann opinn allan sólarhringinn.

www.kbbanki.is

 

As part of the E@sy Connect Service concept, all Radisson SAS hotels offer free high-speed Internet access, throughout our facilities, to all registered hotel guests and meeting delegates. Just bring your laptop and check emails, download music, surf the web; do it all and do it for free when you stay with us.
 

 

 

Contact Us Privacy Policy Toll-free Numbers About Us Best Online Price Guarantee
Other Brands in The Rezidor Hotel Group: Park Inn Country Inns Regent Radisson SAS Hotels & Resorts
© 2008 The Rezidor Hotel Group. All rights reserved